① Túndran og tifið á Sléttu


Opið þri-sun 13-17.
4.Júlí til 11. ágúst

Sjá sýndarheimsókn

Þér og þínum er hér með boðið að vera við opnun sýningarinnar "túndran og tifið á sléttu" þan 4.Júlí næstkomandi klukkan 18.00 í Óskarsstöð, Raufarhöfn. Veitingar og gleði
Klukkan átta verður gengið í norðlenskri sumarblíðu út í lýsistankana þar sem Berglind María Tómasdóttir flautuleikari kveikir sinn galdur.



Sýningin Túndran og tifið á Sléttu hverfist um Melrakkasléttu og þær breytingar sem hafa þegar orðið og munu senn verða bæði lífríki og jarðvegi landsvæðisins, sem afleiðing hamfarahlýnunar. Þátttakendur sýningarinnar samanstanda af fjölbreyttum hópi reynslumikilla listamanna: myndlistarmanna, tónskálds, hljóðfæraleikara og hönnuðar. Sýningarverkefnið er unnið í samstarfi við Menningarfélagið Heimsenda og Rannsóknastöðina Rif. Vísindafólk hefur safnað saman gögnum um landsvæðið
og verður sá gagnabanki aðgengilegur listamönnunum. Þeir munu móta verk úr gögnunum og miðla þeim á samsýningu sem haldin verður á Raufarhöfn næsta sumar. Ósæð verkefnisins er Óskarsbraggi, veglegt timburhús á Raufarhöfn, sem mun hýsa sýninguna. Húsið hefur verið í uppbyggingu undanfarin ár og er stefnt að því að það verði sannkölluð menningarmiðstöð. Það tengir verkefnið við brothætta byggðarsögu Raufarhafnar – hnignun og uppgang.




Verkefnið hófst formlega sumarið 2022, þegar hópurinn kom saman í tæpa viku til að kanna aðstæður, kynnast umhverfinu og hvert öðru. Ári síðar eða núna í sumar var síðan haldin vikulöng vinnustofudvöl á Melrakkasléttu, þar sem sá grunnur sem þegar var grafinn var steyptur. Þá styrktust tengsl þátttakenda við nærsamfélagið: náttúruna, heimamenn, vísindafólk og sveitarstjórn.

Melrakkaslétta býr yfir náttúrufegurð og menningarsögu sem mikilvægt er að unnið sé með á vettvangi listarinnar á þeim umbrotatímum sem loftslagsbreytingar eru. Sléttan heyrir til Norðurheimsskautasvæðisins en afleiðingar hlýnunar eru meiri og hraðari á vistkerfi þess heldur en önnur vistkerfi jarðar. Þar sem Melrakkaslétta er einn af fáum stöðum í heiminum sem hægt er að keyra inn á Norðurheimsskautasvæðið er það tilvalin staðsetning fyrir Rannsóknarstöðina Rif, stofnun sem kemur að verkefninu. Pedro Rodrigues, forstöðumaður Rifs, sér um að veita þátttakendum gögn, tól og ráðgjöf um ástand lífríkis og náttúru staðarins. Þverfagleg nálgun þessa verkefnis á túlkun og miðlun loftslagsbreytinga á Norðurslóðum er einn af helstu
styrkleikum þess.





Listamenn:
Berglind Tómasdóttir, Bryndís Snæbjörnsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Kristín Reynisdóttir, Margrét H. Blöndal, Mark Wilson, Pétur Magnússon, Pétur Örn Friðriksson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Snorri Freyr Hilmarsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir og Þórarinn Blöndal.

Verkefnastjóri:
Julie Sjöfn Gasiglia

Sérstakar þakkir fyrir þeirra vinnu í 2022-2023:
Íris Indriðadóttir og Signý Jónsdóttir






This project is an interdisciplinary collaboration between art and science, which we consider being an important part of knowledge creation in times of global climate crisis.

The works of the exhibition are spread betwen, Óskarsbraggi, around Raufarhöfn as well as out in the wild. (See map here.)
The project officially began in the summer of 2022, when the group came together for a week to explore, get to know the environment and each other.

A year later, a week-long studio was held on the Melrakkaslétta, where the foundation was laid for what is now in public view.
With the exhibition “túndran og tifið á Sléttu”, artists get the opportunity to create and share art in original conditions. in the arctic. That comes with both challenges and opportunities.





︎         ︎                       Óskarsbraggi
/ Óskarstöðinn

Höfðabraut 4a - 675 Raufarhöfn

861-3372  - oskarsbraggi@gmail.com